top of page

Þjálfunarpakkar

Þjálfunarpakkarnir okkar eru frábærir fyrir þá sem hafa t.d. ekki tök á að koma á námskeið eða vilja aðstoð strax. Hver pakki er settur upp með ákveðna hugmynd í huga en það er alltaf hægt að aðlaga eftir þörfum. 

Þjálfunarpakkarnir eru bæði hugsaðir til þess að aðstoða hundaeigendur með hegðunarvandamál hundsins og einnig til þess að hafa efni og fræðslu aðgengilega hvenær sem er og til að veita persónulega þjónustu. Við miðum aðferðir og nálgun út frá hverjum hundi og hverjum eiganda fyrir sig. 

Göngutúrapakkinn

Þessi þjálfunarpakki er hugsaður fyrir þá hunda sem eiga erfitt með göngutúra, hvort sem það er gagnvart öðrum hundum eða öðru áreiti í umhverfinu. Í þessum pakka fer þjálfari með þér og hundinum þínum í göngutúr og finnur lausn á því vandamáli sem er til staðar.  Verð: 35.000 kr. 

Innifalið í pakkanum: 

3 einkatímar

Fræðsla í myndbandsformi

Spjall/aðstoð hjá þjálfara yfir þjálfunartímabilið (ca 3 vikur)

Cute Puppy_edited.jpg

Hvolpapakkinn

Hvolpapakkinn lýsir sér svolítið sjálfur - þú færð aðstoð þjálfara við ýmislegt í uppeldi hvolpa, hvort sem það er að húsvenja eða umhverfisþjálfun. Frábært fyrir þá sem hafa ekki alið upp hvolp áður eða komast ekki á námskeið með hvolpinn sinn á fyrstu mánuðunum. Verð 20.000 kr. 

Innifalið: 

1 einkatími

Fræðsla í myndbandsformi

Hvolpahandbók Hundaskóla Norðurlands

Til að panta þjálfunarpakka hjá okkur er langbest að senda okkur tölvupóst. Í kjölfarið hefur þjálfari samband við þig og útskýrir næstu skref.

©2021 by Hundaskóli Norðurlands. Proudly created with Wix.com

bottom of page