
Námskeið
Hundaskóli Norðurlands reynir eftir bestu getu að bjóða hundaeigendum á Akureyri upp á námskeið allt árið um kring. Eins og staðan er núna erum við ekki með fast húsnæði og því eru námskeiðin því miður ekki regluleg. Að því sögðu eru hér þau námskeið sem eru í boði hjá okkur. Ef smellt er á námskeiðshóp munu koma nánari upplýsingar um dagsetningar o.fl.
Vonandi finnum við svo fast húsnæði aftur og getum haft námskeið rúllandi allan ársins hring!
Því miður er staðan þannig hjá okkur núna þannig að við erum í smá pásu og erum því ekki starfandi eins og er. Vonandi munum við byrja aftur með bæði einkatíma og námskeið síðar en óljóst er hvenær það myndi gerast. Um leið og staðan skýrist þá munum við setja fram upplýsingar á vefsíðuna okkar og á samfélagsmiðla.


